Mariano Rajoy for­sæt­is­ráðherra Spán­ar varð fyrir líkamsárás á kosningafundi í borginni Pontevedra á Spáni í dag.

Sautján ára gamall drengur kýldi Rajoy þegar hann var að ræða við kjósendur eftir fundinn.

Gleraugu forsætisráðherrans brotnuðu en Rajoy varð ekki meint af. Hann lét ekki slá sig út af laginu og ferð sinni áfram. Drengurinn var hins vegar handtekinn af lögreglu.

Þingkosningar verða haldnar á Spáni næsta sunnudag.