Jökull Gunnarsson framleiðslustjóri PCC BakkiSilicon hf. hefur verið ráðinn forstjóri félagsins. Hafsteinn Viktorsson sem lætur nú af störfum sem forstjóri mun sinna verkefnum fyrir félagið, þar á meðal hvað varðar mögulega stækkun verksmiðjunnar.

Frá júní 2016 hefur Hafsteinn unnið að byggingu og gangsetningu kísilverksmiðjunnar á Bakka við Húsavík. Hluthafar PCC BakkiSilicon hf. þakka honum kærlega fyrir það lykilhlutverk sem hann hefur gegnt í því verkefni og hlakka til að vinna með honum að nýjum viðfangsefnum.