Fjölmargir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka hafa að undanförnu safnað áheitum til að styrktar góðgerðarfélögum. Björn Zoëga , forstjóri Landspítalans, hleypur 10 kílómetra til styrktar rjóðrinu. Í dag hafði Björn þegar safnað rúmum 200 þúsund krónum.

Halldóra Friðgerður Víðsdóttir , hjúkrunafræðingur á Landspítalanum, hleypur einnig á morgun 10 kílómetra. Halldóra hefur safnað rúmum 400 þúsund krónum til styrktar Krafti.