Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson mun í dag eiga fundi með forystumönnum stjórnmálaflokka sem eiga
fulltrúa á nýkjörnu Alþingi.

Fundirnir verða á Bessastöðum og verða eins og hér segir:

  • Fundur forseta og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, verður klukkan 10.
  • Fundur forseta og Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, verður klukkan 11.
  • Fundur forseta og Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins, verður klukkan 12.
  • Fundur forseta og Loga Más Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar, verður klukkan 13.
  • Fundur forseta og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, verður klukkan 14.
  • Fundur forseta og Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, fulltrúa Pírata, verður klukkan 15.
  • Fundur forseta og Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, verður klukkan 16.
  • Fundur forseta og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, verður kl