Elísabet G. Björnsdóttir, fjármálaverkfræðingur, hefur hafið störf hjá Fjárstýringu Landsbankans. Elísabet hefur mikla reynslu af fjármálastarfsemi en hún hefur frá árinu 2008 unnið hjá J.P. Morgan í New York og London.

Elísabet lauk B.Sc.-prófi í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2006. Hún hlaut Fulbright-styrk og Thor Thors-styrk  til framhaldsnáms og lauk meistaraprófi í fjármálaverkfræði frá Cornell-háskóla í Bandaríkjunum árið 2008.

Elísabet vann hjá verkfræðistofunni Línuhönnun veturinn 2006-2007 og hjá Kaupþingi sumarið 2007. Hún hóf störf hjá J.P. Morgan í New York árið 2008 í deild sem sér um að lágmarka mótaðilaáhættu bankans. Rúmu ári síðar flutti hún sig yfir til J.P. Morgan í London þar sem hún hefur að undanförnu stýrt veltubók með skuldatryggingar og sambankalán.