Kerecis hefur ráðið Blake McBride sem yfirmann samstarfsverkefna hjá fyrirtækinu. Blake hefur störf hjá Kerecis um mánaðarmótin eftir 28 ára þjónustu í bandaríska sjóhernum, síðast sem kapteinn og aðstoðarframkvæmdastjóri  Rannsóknarmiðstöðvar bandaríska sjóhersins í Singapore.

Hjá Kerecis mun Blake stjórna samstarfsverkefnum við bandaríska sjóherinn, rannsóknarstofnanir bandarískra varnarmálayfirvalda og alþjóðastofnanir. Blake er með BS og MS í eðlisfræði og MA gráðu í þjóðaröryggi og stefnumörkun frá U.S. Naval War College.