Vísitala framleiðsluverðs í mars var 200,4 stig og hækkar um 0,5% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands Í dag.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 260,8 stig og lækkar því um 1,2% og vísitala fyrir stóriðju var 179,4 stig sem er hækkun um 2,5%. Framleiðsluverð fyrir matvæli hækkaði um 0,6% og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 0,1%.

Tölur Hagstofunnar sína að miðað við mars 2015 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 10,7% og verðvísitala sjávarafurða lækkað um 5,3%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 24,4% en verð á matvælum hækkað um 3,4%.