Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,6% milli ágúst og september 2018. Sjávarafurðir hækkuðu um 2,9%. Afurðir stóriðju hækkuðu um 1,1%, annar iðnaður hækkaði um 1,6% (0,3%) og matvæli hækkuðu um 0,9%. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands .

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 5,5% frá september 2017 til september 2018. Þar af hafa afurðir stóriðju hækkað um 8,5%, sjávarafurðir hækkuðu um 3,8%, annar iðnaður hækkaði um 3,7% og matvæli hækkuðu um 3,4%.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 6,2% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkuðu um 3,9%.