Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 2,3% á milli maí og júní 2018. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar . Afurðir stóriðju hækkuðu um 4,2% (áhrif á vísitölu 1,5%), sjávarafurðir hækkuðu um 2,1% (0,5%), annar iðnaður hækkaði um 1,3% (0,3%).

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 11,7% frá júní 2017 til júní 2018. Þar af hafa afurðir stóriðju hækkað um 27,9%, sjávarafurðir hækkað um 10,4% og matvæli hækkað um 1,0%. Annar iðnaður lækkaði hins vegar um 0,5% á sama tímabili.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 17% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkuðu um 2,6%.