Vísitala framleiðsluverðs í október var 203,5 stig og lækkar um 1,2% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í nýjum tölum fra Hagstofu Íslands .

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir lækkaði um 1,7% frá fyrri mánuði, vísitala fyrir stóriðju lækkaði um 0,4%, vísitala fyrir matvæli lækkaði um 0,4% og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 2,3%.

Miðað við október 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 5,2% og verðvísitala sjávarafurða lækkað um 1,3%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 16,9% en verð á matvælum hækkað um 2,0%.