Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu tók lítillega við sér í vikunni og nam 1.223 milljónum króna samanborið við 931 milljón í vikunni áður samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands en þetta er þá veltumesta vikan í þrjár vikur.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar nú milli vikna eftir að hafa lækkað síðustu fjórar vikur þar á undan og er nú rúmur 1,1 milljarður. Fjögurra vikna meðalvelta hefur þó dregist saman um 31% milli ára.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér til hliðar. Þar sést hvernig fjögurra vikna meðalveltan hefur verið að stíga upp á við frá áramótum, þ.e. á milli ára, en fer þó lækkandi aftur um miðjan maí. Um miðjan maí hafði fjögurra vikna meðalvelta aukist um 1% sem var í fyrsta frá því fyrir jól árið 2007 sem fjögurra vikna meðalvelta jókst milli ára.

Til að fá enn heildstæðari samanburð á veltu á fasteignamarkaði er hægt að skoða 12 vikna meðalveltu en hún hefur nú dregist saman um 32% milli ára en mest hafði þó dregist saman um tæp 80% um miðjan janúar s.l. Það að 12 vikna meðalvelta hafi dregist saman um tæp 80% í janúar sýnir á ákveðinn hátt hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur minnkað á rúmu hálfu öðru ári.

Alls var 42 kaupsamningum þinglýst í vikunni sem er nokkuð yfir meðaltali, en 33 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Alls hefur 34 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning er á svipuðu róli og í síðustu viku, nemur nú 29,1 milljón króna á hvern samning en var í síðustu viku 28,2 milljónir króna. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 33,8 milljónir króna.

Á ársgrundvelli hefur vikuvelta á fasteignamarkaði dregist saman um 47%. Sem fyrr segir þá segir það ekki alla söguna þar sem fasteignasala getur sveiflast nokkuð milli vikna. Því er nær að líta til fjögurra vikna meðalveltu sem fjallað var um hér að ofan.