Fríða Hrönn Elmarsdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga.

Hún hefur meðal annars starfað sem verkefnastjóri borðspila- og púslútgáfu hjá Nordic Games, skrifstofustjóri hjá Rafbraut og blaðamaður hjá Viðskiptablaðinu.

Fríða er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og lauk meistaranámi í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School.