Friðleifur Egill Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Eleven Experience á Íslandi, en fyrirtækið býður upp á lúxusferðir víða um heim.
Starfsemin hér á landi verður byggð upp í kringum hótel í Fljótunum í Skagafirði, en meðal annars verður boðið upp á skíðaferðir með þyrlum.
Friðleifur Egill var áður lögmaður hjá Nordik lögfræðiþjónustu.