Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 22,1% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 5.-11. desember. Fylgi Sjálfstæðisflokksins jókst um eitt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 21. nóvember. Samfylkingin mældist með 16,9% fylgi, sem er svipað fylgi og flokkurinn mældist með í síðustu könnun. Píratar bættu rúmlega þremur prósentustigum við fylgi sitt frá síðustu könnun og mældust með 14,4% fylgi. Þá bættu Vinstri græn rúmlega tveimur og hálfu prósentustigi við fylgi sitt og Framsóknarflokkurinn bætti við sig fimm prósentustigum frá síðustu mælingu. Fylgi Miðflokksins féll hins vegar um rúmlega sjö prósentustig frá síðustu mælingum.

Stuðningur við ríkisstjórnina jókst lítillega en 40,3% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 39,9% í síðustu mælingu.

  • Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,9% og mældist 10,3% í síðustu könnun.
  • Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 12,5% og mældist 7,5% í síðustu könnun.
  • Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,5% og mældist 8,6% í síðustu könnun.
  • Fylgi Miðflokks mældist nú 5,9% og mældist 13,1% í síðustu könnun.
  • Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,2% og mældist 7,6% í síðustu könnun.
  • Fylgi annarra flokka mældist 2,6% samanlagt.