Ríkisstjórnin hefur, að höfðu samráði við heildarsamtök á vinnumarkaði, ákveðið að skipa starfshóp um kjararáð. Mun Jóhannes Karl Sveinsson hæstaréttarlögmaður leiða starf hópsins, en auk fulltrúa ríkisins verður fulltrúi frá SA, BSRB og ASÍ í starfshópnum.

Á hópurinn að bera saman fyrirkomulag um launaákvarðanir embættismanna við fyrirkomulagið í nágrannalöndunum í átt til meiri sáttar. Jafnframt á hópurinn að fara yfir úrskurði ráðsins hingað til með hliðsjón að launastefnu meginþorra launafólks og leggja fram tillögur að úrbótum.

„Starfshópurinn skal ljúka störfum eigi síðar en 10. febrúar nk.,“ segir m.a. í tilkynningu um starfshópinn frá ríkisstjórninni.

„Hópurinn skal bera saman fyrirkomulag um ákvörðun launa hjá kjörnum fulltrúum, dómurum og embættismönnum í nágrannalöndum og leggja fram tillögur að breyttu fyrirkomulagi launaákvarðana kjararáðs, sé annað fyrirkomulag talið líklegra til betri sáttar í þjóðfélaginu til framtíðar um ákvörðun launa þeirra sem stöðu sinnar vegna njóta ekki samningsréttar.

Þá skal starfshópurinn taka til skoðunar úrskurði kjararáðs, meta með hliðsjón af launasetningu og launabreytingum þeirra stétta sem samningsfrelsis njóta og þeirri launastefnu sem samið var um við meginþorra launafólks og eftir atvikum leggja fram tillögur um úrbætur.“

Hópinn skipa:

  • Jóhannes Karl Sveinsson hrl. formaður

Auk hans sitja í hópnum fyrir hönd ríkisins:

  • Benedikt Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti
  • Guðrún Þorleifsdóttir, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneyti
  • Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu.

Fyrir hönd aðila vinnumarkaðarins sitja þau:

  • Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
  • Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB
  • Magnús Norðdahl lögfræðingur ASÍ