Fyrsta skóflustunga að byggingu Skarðshlíðarskóla í Hafnarfirði var tekin kl 15 í dag. Skólinn er áttundi grunnskóli bæjarins en áætlanir gera ráð fyrir að skólinn verði eingöngu byggður fyrir eigið fé Hafnarfjarðarbæjar, einkum tekjur af lóðasölu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.

Skarðshlíðarskóli hóf starfsemi í vikunni í safnaðarheimili Ástjarnarkirkju en þar fer kennslan fram á meðan framkvæmdir við fyrsta áfanga standa yfir.

Það voru þær Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs og formaður fræðsluráðs og Guðlaug Kristjánsdóttir forseti bæjarstjórnar og formaður fjölskylduráðs sem tóku fyrstu skóflustunguna ásamt þeim Alexander Dýra Eyjólfssyni elsta nemenda skólans og þeim yngsta, Kristbjörgu Evu Arnarsdóttur.

,,Þetta er bæði mikilvægur og ánægjulegur áfangi í hafnfirskri skólasögu,“ sagði Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs og fræðsluráðs við skóflustunguna í dag. ,,Vil ég óska tilvonandi nemendum, foreldrum, starfsmönnum og Hafnfirðingum öllum til hamingju og vona að gæfa eigi eftir að fylgja framkvæmdinni og skólastarfinu öllu í framtíðinni.“

96 nemendur eru skráðir í skólann þetta skólaár en þegar hann verður fullbyggður verður hann tveggja hliðstæðu grunnskóli með um 400-500 nemendur. Gert er ráð fyrir fjögurra deilda leikskóla fyrir 80-90 nemendur og útibúi frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar sem getur annað allt að 200 nemendum.

Það er verktakafyrirtækið Eykt sem byggir skólann samkvæmt samningi sem undirritaður var í sumar . Fyrsta áfanga framkvæmdarinnar á að vera lokið haustið 2018 og mun þá Skarðshlíðarskóli flytja í húsnæðið. Gert er ráð fyrir að sumarið 2019 verði húsnæði fyrir leikskólann tilbúið og að ári síðar, eða sumarið 2020, verði skólinn fullbyggður, þ.e. grunn- og leikskóli, tónlistarskóli og íþróttahús.

Skarðshlíðarskóli mun samanstanda af húsnæði fyrir 2ja hliðstæðu grunnskóla um 6.800 m2, tónlistarskóla um 480 m2, leikskóla um 760 m2og íþróttahús um 870 m2, samtals um 8.910 m2. Byggingarnar verða hannaðar samkvæmt hugmyndafræði algildrar hönnunar. Í því felst að hanna góðar lausnir með jafnrétti og vellíðan  fólks í fyrirrúmi.