„Stofna skal stöðugleikasjóð sem haldi utan um arð af orkuauðlindum í eigu ríkissjóðs, tryggi komandi kynslóðum hlutdeild í ávinningi af sameiginlegum auðlindum og geti verið sveiflujafnandi fyrir efnahagslífið,“ segir í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.

Í samræmi við þetta hefur Bjarni Benediktsson forsætisráðherra skipað sérfræðingahóp um stofnun slíks sjóðs. Þessu greindi hann frá á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands í dag. Einnig kemur þetta fram í tilkynningu forsætisráðuneytisins.

„Við ætlum að koma á fót slíkum sjóði. Fyrsta skrefið er að koma saman hópi sérfræðinga, sem undirbýr löggjöf sem við munum leggja fyrir þingið, frumvarp um það efni. Ég ætla núna, fyrir helgi, að koma þessum hópi saman og þau munu sitja í þessum hópi: Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi seðlabankastjóri, Kristín Haraldsdóttir, lögfræðingur og Erlendur Magnússon, fjárfestir,“ sagði Bjarni á Viðskiptaþingi.

„Þessi sérfræðingahópur mun starfa mjög náið þverpólitískt, sem er gríðarlega mikilvægt vegna þess að það er ekkert vit og enginn ávinningur í því að koma á fót sjóði sem hugsaður er til langrar framtíðar, ef að það er ekki þverpólitískur stuðningur um það. Góðu fréttirnar eru þær að ég finn fyrir góðum þverpólitískum stuðningi við þessa hugmynd, sem við erum að leggja grunn að núna og ætlum að hrinda í framkvæmd á kjörtímabilinu,“ bætir hann við.

Í tilkynningu segir forsætisráðherra ánægjulegt að þessi vinna skuli vera formlega hafin.

„Við sjáum fyrir okkur að markmið stöðugleikasjóðs verði að byggja upp viðnám til að mæta fjárhagslegum áföllum án þess að það leiði til skuldasöfnunar eða ójafnvægis í hagkerfinu eins og við þekkjum svo vel úr sögunni. Markmiðin lúta því einkum að sveiflujöfnun, varúðarsjónarmiðum og sjálfbærni opinberra fjármála. Horft er til þess að hlutverk slíks stöðugleikasjóðs yrði að byggja upp þjóðhagslegan sparnað með því að taka við og ávaxta fjárhagslegar eignir ríkissjóðs sem til hans eru lagðar og að ráðstafa fjármunum til ríkissjóðs í samræmi við ákvæði laga,“ sagði Bjarni.

Samkvæmt tilkynningu forsætisráðuneytisins er gert ráð fyrir að fjármögnun stöðugleikasjóðs verði með þeim hætti að til hans verði ráðstafað fjárhagslegum arði ríkisins af orkuauðlindum, eftir atvikum í formi afnotagjalda, arðgreiðslna orkufyrirtækja, verðbréfa tengd orkufyrirtækjunum eða í öðru formi. Þá verði metið hvort til sjóðsins yrði lagðar aðrar fjárhagslegar eignir, svo sem fjármunir sem varðveittir eru í gjaldeyrisvaraforða Seðlabanka Íslands samkvæmt sérstöku samkomulagi við bankann.