Fyrstu skuldabréfin hafa verið tekin til viðskipta á Nasdaq First North Iceland markaðnum. Skuldabréfin eru gefin út af fjárfestingarsjóðnum AAM GLEQ3, sem rekinn er af rekstarfélaginu ALDA Sjóðir hf. KPMG ehf. hafði umsjón með skráningu skuldabréfanna.

Páll Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland:

„Við fögnum þessari fyrstu skráningu skuldabréfa á Nasdaq First North Iceland og óskum Öldu sjóðum og viðurkenndum ráðgjafa, KPMG til hamingju. Nasdaq First North skuldabréfamarkaðurinn veitir góð tækifæri til fjármögnunar og erum við þess fullviss að við munum sjá fleiri skráningar fylgja í kjölfarið.“