Ríkiskaup hafa lagt lokahönd á rammasamning um kaup á tölvubúnaði sem gæti sparað íslenska ríkinu um 100 milljónir króna á ári. Þetta er í fyrsta skipti sem Ríkiskaup skilgreina forgangsbirgja vegna kaupa á slíkum búnaði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Advania.

„Það hefur gefið góða raun að skilgreina forgangsbirgja í þeim rammasamningum sem við höfum gert“ segir Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri Ríkiskaupa. „Þetta fyrirkomulag einfaldar innkaupaferla og tryggir ríkisstofnunum hagkvæmari verð og er því samningurinn alveg í anda markmiðs okkar um að auka hagkvæmni í innkaupum opinberra aðila“.

Samningurinn kemur til eftir útboðsferli sem lauk í maí síðastliðnum og kveður á um að Advania verði forgangsbirgi Ríkiskaupa næstu tvö árin. Í samningnum eru tilgreindar ákveðnar tegundir notendabúnaðar frá Dell sem ríkisstofnunum stendur til boða að kaupa.

„Það eru frábærar fréttir fyrir okkur hjá Advania að fá að vera forgangsbirgi Ríkiskaupa á sviði notendabúnaðar næstu árin“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi. Samningur sem þessi, sem tilgreinir ákveðnar gerðir búnaðar í miklu magni, gerir okkur kleift að sækja betri verð til birgja og skila ávinningnum til viðskiptavina, sem í þessu tilfelli eru ríkisstofnanir. Miðað við endurnýjunarþörf síðustu ára reiknast okkur til að sparnaður ríkisins vegna þessa samnings geti numið um 100 milljónum króna á ári. Við erum stolt af því að geta tryggt opinberum aðilum betra verð á vönduðum tölvubúnaði frá Dell og hvetjum viðskiptavini okkar til að skoða kosti þess að fara í sambærilegt samstarf með okkur.“