Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum og nam heildareftirspurn í útboðinu 1.860 milljónum króna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru samtals 540 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 2,59%. Heildartilboð voru 540 milljónir á bilinu 2,56% - 2,59% Heildarstærð flokksins verður 19.180 milljónir króna eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 1.320 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 2,55%. Heildartilboð voru 1.320 milljónir króna á bilinu 2,51% - 2,55%. Heildarstærð flokksins verður 16.780 milljónir króna eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 31. janúar næstkomandi. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 108.260 milljónir króna.