Minnihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur og formaður VR hafa gefið frá sér yfirlýsingu þar sem gagnrýnd eru ummæli sem Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur og varaformaður Samfylkingarinnar, lét falla um húsnæðismarkaðinn í Reykjavík í þættinum Vikulokunum á Rás 1 í morgun.

Yfirlýsinguna er hægt að lesa í heild sinni hér að neðan:

Sameiginleg yfirlýsing stjórnarandstöðuflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur og formanns VR

Stjórnarandstöðuflokkarnir í borgarstjórn Reykjavíkur, Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Sósíalistaflokkurinn, og formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, lýsa yfir áhyggjum af þekkingarleysi formanns velferðarráðs Reykjavíkur og varaformanns Samfylkingarinnar, Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, á húsnæðismarkaðnum í Reykjavík.

Tilefnið er ummæli hennar í þættinum Vikulokunum á Rás 1 í morgun, þar sem hún sagði 1000 íbúðir í byggingu á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga. Þetta er rangt. Hið rétta er að 256 íbúðir, svo vitað sé, eru í byggingu á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga í Reykjavík og hefur borgin gefið út 551 byggingarleyfi til handa slíkum leigufélögum, sem er víðs fjarri þeim 1000 íbúðum sem formaður velferðarráðs, Heiða Björg Hilmisdóttir, heldur fram að séu í byggingu.

Þá hafnaði formaður velferðarráðs jafnframt þeirri staðreynd að byggingaréttargjald hefði áhrif á leiguverð í Reykjavík. Á meðan staðreyndin er sú að byggingarréttargjaldið, sem er 45.000 kr. á hvern fermetra, veldur verulegum töfum á byggingu leiguíbúða í Reykjavík en gjaldið leggst á leiguverð sem eykur greiðslubyrði leigjanda til muna og getur gjaldið numið hundruðum þúsunda árlega fyrir hverja íbúð.

Þessi ummæli formanns velferðarráðs undirstrika skilningsleysið á þeim brýna húsnæðisvanda sem er í Reykjavík. Stjórnarandstöðuflokkarnir í borgarstjórn Reykjavíkur, hafa nú þegar lagt fram tillögur til lausnar vandans en þær tillögur hafa því miður ekki náð fram að ganga. Stjórnarandstöðuflokkarnir og formaður VR skora á meirihlutaflokkana í borginni að bregðast við vandanum með því að taka undir tillögur stjórnarandstöðuflokkanna í húsnæðismálum.