Garðabær hefur samið við ríkið um að bærinn kaupi jörðina Vífilsstaði. Hefur bærinn komist að samkomulagi við fjármála- og efnahagsráðuneytið um að greiða 558, 6 milljónir króna fyrir landið að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Húseignir við Vífilstaði eru undanskildir kaupunum.

Um er að ræða alls 202,4 hektara sem er svæðið í kringum Vífilsstaðaspítala, svæði austan Vífilsstaða (Skyggnir), núverandi golfvallarsvæði GKG, friðland í Vífilsstaðahrauni (Svínahrauni) og Rjúpnahæð á móts við Kjóavelli.

Ríkið fær hlutdeild af ágóða af lóðum

Kaupverðið nemur 558,6 milljónum króna og byggir það á mati á grunnverði landsins sem aðilar stóðu sameiginlega að.

Við undirritun kaupsamnings koma til greiðslu 99,3 milljónir króna, en eftirstöðvarnar koma til greiðslu í tengslum við uppbyggingu svæðisins eða eigi síðar en innan átta ára.

Til viðbótar grunnverði á seljandi rétt á hlutdeild í ábata af sölu byggingarréttar á svæðinu. Undanskildar eru allar húseignir ríkisins á Vífilsstöðum en gerðir verða lóðarsamningar um eignirnar.

Byggja hverfi fyrir allt að 1.500 manns

Með kaupum á landinu tryggir Garðabær sér forræði yfir eignarhaldi landsins sem mun auðvelda bæjarfélaginu að vinna að gerð skipulagsáætlana fyrir svæðið.

Í tillögu að nýju aðalskipulagi Garðabæjar er gert ráð fyrir að svæði Vetrarmýrar, Hnoðraholts og Vífilsstaða verði eitt skólasvæði með 1200-1500 íbúðum þar sem fléttast saman ólíkir hagsmunir með uppbyggingu íbúðarbyggðar, skóla- og íþróttasvæði og atvinnu- og þjónustusvæði.

Gert er ráð fyrir að bæjarstjóri Garðabæjar og fjármála- og efnahagsráðherra staðfesti samkomulagið með undirskrift sinni miðvikudaginn 19. apríl næstkomandi í golfskála GKG.

Garðabær fyrirhugar í framhaldi af undirritun samningsins að efna til samkeppni um rammaskipulag svæðisins.