Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,2% í dag og stendur því nú í 1.746,14 stigum. Heildarvelta á mörkuðum nam 6,5 milljörðum, þar af var velta á hlutabréfamarkaði 2,3 milljarðar og velta á skuldabréfamarkaði 4,2 milljarðar.

Gengi hlutabréfa Haga hækkaði mest í dag eða um 1,41 prósentustig í 389,9 milljón króna viðskiptum. Einnig hækkaði gengi hlutabréfa TM um 0,9% í 68 milljón króna viðskiptum.

Hins vegar lækkaði gengi bréfa Vátryggingafélags Íslands h.f. mest eða um 1,51% í 83,5 milljón króna viðskiptum. Gengi hlutabréfa HB Granda hélt áfram að lækka. Í gær lækkaði gengi bréfanna um rúm 5% og í dag um 0,62% í 271,8 milljón króna viðskiptum.