Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,3% í viðskiptum dagsins og stendur nú í 1.742,77 stigum. Heildarvelta á mörkuðum nam 7.838 milljónum króna, þar af var velta á Aðalmarkaði hlutabréfa 3.845 milljónir og 3.968 milljónir á skuldabréfamarkaði.

Af úrvalsvísitölufélögunum hækkaði gengi bréfa Reita mest, eða um 1,21% í 252 milljónum. Mest velta var með bréf Eimskipafélagsins, sem hækkaði einnig, eða um 1,12%. Mest hækkun átti sér þó stað á gengi bréfa Nýherja en það hækkaði um 4,63% í 105 milljón króna viðskiptum.