Georg Haraldsson hefur tekið við nýrri stöðu forstöðumanns Viðskiptastýringar hjá Iceland Travel. Georg er tölvunarfræðingur með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík og IE Business School í Madrid.

Hann hefur víðtæka reynslu af ferðaþjónustu og flugtengdri starfsemi frá fyrri störfum sínum hjá Iceland Express og Dohop.com. Einnig hefur Georg starfað um sex ára skeið við sölustýringu á alþjóðamarkaði hjá Marorku og Völku.

Iceland Travel á sér áratugalanga langa sögu og starfar á öllum sviðum íslenskrar ferðaþjónustu. Fyrirtækið vinnur með fjölda alþjóðlegra samstarfsaðila og tekur á móti vel yfir eitt hundrað þúsund ferðamanna á ári hverju. Þar er bæði um að ræða hópa og einstaklinga frá öllum heimshornum.

Að auki sér Iceland Travel um þjónustu við fjölda skemmtiferðaskipa og farþega þeirra á hverju sumri. Iceland Travel starfar á sviði fágætisferðaþjónustu, meðal annars undir merkjum Nine Worlds.