Á tólf mánaða tímabili janúar til desember 2015 voru gistinætur á hótelum 2.815.900 sem er 22% aukning miðað við sama tímabil árið áður, samkvæmt tölum Hagstofunnar.

Gistinætur á hótelum í desember voru 181.900 sem er 36% aukning miðað við desember 2014. Gistinætur erlendra gesta voru 89% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 44% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 3%.

Flestar gistinætur á hótelum í desember voru á höfuðborgarsvæðinu eða 146.600 sem er 35% aukning miðað við desember 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 19.300. Erlendir gestir með flestar gistinætur í desember voru; Bretar með 61.100, Bandaríkjamenn með 36.200 og Þjóðverjar með 12.100 gistinætur.