Gistinætur á hótelum í júlí voru 351.700 sem er 17% aukning miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofu Íslands .

Gistinætur erlendra gesta voru 92% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 19% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 3%.

Flestar gistinætur á hótelum í júlí voru á höfuðborgarsvæðinu eða 193.200 sem er 18% aukning miðað við júlí 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 61.700.

Erlendir gestir með flestar gistinætur í júlí voru Þjóðverjar með 77.300, Bandaríkjamenn með 62.000 og Bretar með 32.200 gistinætur.

Á tólf mánaða tímabili ágúst 2014 til júlí 2015 voru gistinætur á hótelum 2.556.990 sem er fjölgun um 17% miðað við sama tímabil ári fyrr.