Gistinætur á hótelum í ágúst voru 457.600 sem er 2% aukning miðað við ágúst í fyrra. Um 53% gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 243.600, sem er 2% aukning miðað við ágúst í fyrra. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands . Á tólf mánaða tímabili frá september 2016 til ágúst 2017 var heildarfjöldi gistinátta á hótelum tæplega 4,2 milljónir, sem er 21% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

Mest aukning var á Suðurnesjum en þær voru 28.600 sem er 33% aukning frá fyrra ári, en á sama tíma jókst framboð herbergja á Suðurnesjum um 64%. Einnig fjölgaði gistinóttum á Vesturlandi og Vestfjörðum um 4% og á Suðurlandi 3%, en gistinóttum á hótelum fækkaði frá sama mánuði í fyrra á Norðurlandi um 11% og á Austurlandi um 3%.

Flestar gistinætur í ágúst áttu Bandaríkjamenn með 129.200, svo Þjóðverjar með 57.800 og Bretar með 39.000, en íslenskar gistinætur í ágúst voru 32.100. Gistinætur erlendra gesta voru 93% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum, en þeim fjölgaði um 3% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 9%.