Jón Gunnarsson, ráðherra Samgöngumála segir að hugmyndir um stórframkvæmdir í vegagerð verði kynntar á næstunni í aðsendri grein í Viðskiptablaðinu í dag .

Stórframkvæmdir í kringum höfuðborgina

Segir hann að starfshópur undir forystu Eyjólfs Árna Rafnssonar verkfræðings muni á næstu vikum skila tillögum um hvernig ráðast megi í stórframkvæmdir í samgöngum út frá höfuðborgarsvæðinu.

„Hugmyndin sem hópnum var falið að skoða er hvernig greiða megi leiðir út frá Reykjavík; til suðurs til Keflavíkurflugvallar, til austurs með nýrri brú yfir Ölfusá við Selfoss og til vesturs til Borgarness með Sundabraut og nýjum göngum undir Hvalfjörð,“ segir Jón meðal annars í greininni, en hann segir það muni taka áratugi að koma þessum nauðsynlegu samgöngubótum á, ef þær yrðu fjármagnaðar með hefðbundnum hætti.

„Ljóst er að brýn þörf er fyrir samgöngubætur víða um land og hvarvetna er kallað eftir auknu fé til þessa málaflokks. Ekki er að undra það, enda hefur álag á vegakerfið stóraukist á undanförnum árum og á vaxandi ferðamannastraumur til landsins þar drýgstan þátt.“

Myndi flýta framkvæmdum

Eins og samgönguráðherra hefur áður rætt við Viðskiptablaðið um lítur hann til samfjármögnunar með aðkomu einkaaðila til að geta flýtt þessum framkvæmdum, og yrðu veggjöld því nýtt til að greiða niður fjármögnun þeirra.

„Ég sé fyrir mér að þeirri fjárhæð sem innheimt yrði í formi veggjalda yrði stillt mjög í hóf gagnvart fjölnotendum, þ.e. þeim sem oft eiga leið um umrædda vegi vegna atvinnu sinnar eða skólasóknar svo dæmi séu nefnd,“ segir Jón og miðar við að notendur stærri bíla og rútubíla sem og þeir sem ekki eiga oft leið um eins og ferðamenn greiði hærra verð.

„Þar erum við komin með stórnotanda sem sjálfsagt er að fá til að aðstoða okkur við uppbyggingu samgöngumannvirkja. Útlendingar þekkja veggjöld vel af eigin raun, enda innheimt víða um heim.“ Segir hann að þó vel hafi verið bætt í fjármagn til vegamála gefi þessi leið tækifæri til að nýta það fjármagn sem þá færi ella í þessar framkvæmdir víða um land.