Í janúar 2017 voru 70 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá febrúar til 2016 til janúar 2017, hefur fjölgað um 84% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 1.037 fyrirtækja tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, samanborið við 564 á fyrra tímabili.

„Rétt er að nefna að skráning einhverra þeirra gjaldþrota sem hefðu e.t.v. átt að skrást á fyrra tímabilinu dróst yfir á það síðara vegna verkfalls SFR hjá Tollstjóra á síðustu mánuðum ársins 2015,“ segir í frétt Hagstofu Íslands um málið.

Gjaldþrotum fjölgaði hlutfallslega mest í fjármála- og vátryggingastarfsemi þar sem þeim fjölgaði úr 34 í 91 frá fyrra tímabili eða um 168%. Gjaldþrotum fjölgaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum frá fyrra tímabili, en þeim fjölgaði hvað hægast í flutningum og geymslu, úr 16 í 22 eða um 38%.

Nýskráningum fjölgar um 13%

Nýskráningar einkahlutafélaga í janúar 2017 voru 242. Síðastliðna 12 mánuði, frá febrúar 2016 til janúar 2017, hefur nýskráningum fjölgað um 13% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.698 skráð á tímabilinu, samanborið við 2.387 á fyrir 12 mánuðum.

„Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði úr 179 í 278 á síðustu 12 mánuðum (55%), og í flutningum og geymslu, þar sem fjölgunin var úr 44 í 68 nýskráningar (55%). Í framleiðslu fækkaði nýskráningum á tímabilinu úr 94 í 84 (11%),“ er tekið fram í fréttinni.