Alphabet, móðurfélag Google, hleypti af stokkunum nýju smáforrit sem gerir Indverjum kleift að greiða fyrir vörur og þjónustu. Fyrirtækið reynir nú að koma sér inn á indverskan greiðslumiðlunarmarkað sem fer sífellt vaxandi. Samkvæmt frétt Reuters er gert ráð fyrir því að rafræni greiðslumiðlunarmarkaðurinn á Indlandi komi til með að tífaldast á næstu þremur árum.

Forsætisráðherra Indlands, Narendra Modi, tók gífurlega umdeilda ákvörðun í fyrra þegar hann lagði blátt bann á bæði 500 og 1.000 rúpíu seðlum — sem eru verðmestu indversku seðlarnir. Aðgerð ríkisstjórnar Modi beindist gegn skattsvikum og spillingu í landinu. Þó hafði hún mjög neikvæð áhrif á efnahag Indlands . Líklegt er þó að þessi aðgerð hafi virkað sem vatn í myllu rafrænna greiðslumiðlunarkosta.

Forritið ber nafnið Tez, sem þýðir hraði á hindí. Google hefur hafið samstarf við indverska ríkisbankann. Smáforritið verður þó í samkeppni við forritið Paytm, sem að SoftBank bíður upp á ásamt Alibaba. Eins og sakir standa er Paytm stærsta greiðslumiðlunarforritið í Indlandi, og það nota 225 milljón notendur.