Innreið farsíma og ýmissa snjalltækja kallaði á breytingu á kennimerki Google, sem er þekkt um allan heim. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Google hefur birt á heimasíðu sinni í tilefni af útlitsbreytingunni.

Í tilkynningunni segir jafnframt að nýja kennimerkið fari betur á skjám af ólíkum stærðum og gerðum.

Á bloggsíðu Google er farið í saumana á útlitsbreytingunni í myndskeiði.