Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq hækkaði um 1,54% í viðskiptum dagsins. Heildarvelta á mörkuðum nam 5,46 milljörðum. Úrvalsvísitalan stendur því nú í 1.728,11 stigum.

Gengi bréfa í öllum félögum Kauphallarinnar hækkuðu eða stóðu í stað fyrir utan gengi bréfa Össurar sem lækkuðu í mjög litlum viðskiptum.

Mesta hækkunin á gengi bréfa var hjá Marel en hækkunin nam 2,67% í 172 milljón króna viðskiptum. Gengi bréfa Eimskipafélags Íslands hækkaði næstmest eða um 2,6% í 157 milljón króna viðskiptum.

Eins og svo oft áður var mest velta með bréf Icelandair Group. en gengi þeirra hækkaði um 0,2% í 508,5 milljóna viðskiptum.