Þann 6. maí næstkomandi, eftir tvo daga, mun Arion banki greiða niður skuldabréf um 252,6 milljónir Bandaríkjadala auk áfallinna vaxta, eða sem nemur um 31 milljarði íslenskra króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.

Skuldabréfið sem um ræðir nam 747,4 milljón Bandaríkjadölum eða um 97 milljörðum króna. Skuldabréfið var gefið út í upphafi árs. Það er í eigu Kaupþings og var útgáfa þess liður í aðgerðum sem snéru að afnámi fjármagnshafta.

Greiðslan sem um ræðir er í samræmi við ákvæði skuldabréfsins sem kveða á um að Arion banki skuli greiða inn á bréfið gefi bankinn út skuldabréf í erlendri mynt - eins og gert var þann 26. apríl þegar Arion banki gaf út skuldabréf að upphæð 300 milljónir evra.