Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir borgarfulltrúi og héraðsdómslögmaður leiðir lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi Norður við Alþingiskosningarnar 28. október 2017. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Miðflokknum.

Guðfinna hefur setið í borgarráði og umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar og lagt höfuðáherslu á húsnæðismál í Reykjavík og lausn húsnæðisvandans, eins og segir í tilkynningunni.Í störfum sínum að húsnæðismálum á undanförnum árum hefur Guðfinna m.a. setið í stjórn Húseigendafélagsins og Búseta, verið formaður kærunefndar húsamála og tekið þátt í gerð lagafrumvarpa, reglugerða, úrskurða og álitsgerða, kennt og haldið fyrirlestra um fasteignamál.