Guðmundur Arnar Guðmundsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Íslandsbanka.Hann tekur við af Hólmfríði Einarsdóttur sem verið hefur markaðsstjóri Íslandsbanki frá árinu 2011.

Guðmundur mun leiða markaðs- og þjónustumál Íslandsbanka og bera ábyrgð á markaðssókn og vörumerkjauppbyggingu allra vörumerkja Íslandsbanka, sem eru auk Íslandsbanka, VÍB, Ergo, Kreditkort og Kass.

Guðmundur hefur áralanga farsæla reynslu í markaðsmálum, en hann var áður markaðsstjóri Nova, forstöðumaður markaðssviðs WOW Air og vörumerkjastjóri hjá Icelandair.

Guðmundur er hagfræðingur frá kanadíska háskólanum Acadia University og er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Hann er stundakennari í markaðsfræði við Háskólann í Reykjavík, hefur ritað fjölda greina um viðskipti og markaðsmál auk þess að hafa gefið út bók um markaðssetningu á netinu.