Guðmundur Jónsson, gítarleikari Sálarinnar hans Jóns mins, mun gefa Hamborgarafabrikkunni gítarinn sinn í hádeginu á morgun. . Á sama tíma mun hamborgarastaðurinn afhjúpa nýjan borgara sem kenndur er við hljómsveitina og heitir Draumurinn.

Í tilkynningu segir að gítarinn sé af gerðinni Ovation. Hann sé samofinn sögu sveitarinnar en Guðmundur Jónsson samdi flestöll lög Sálarinnar á fyrstu tíu starfsárum sveitarinnar á þennan gítar. Sálin hans Jóns míns fagnar 25 ára starfsafmæli sínu í ár.