Guðmundur Hagalín Guðmundsson hefur verið ráðinn til starfa sem sérfræðingur í tækniþjónustu HS Orku. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Guðmundur kemur til með að starfi staðartæknifræðings við byggingu Brúarvirkjunar, 10 MW vatnsaflsvirkjunar í Biskupstungum.  Auk þess mun hann koma að öðrum vatnsaflsverkefnum á vegum fyrirtækisins. Guðmundur hefur mikla reynslu af virkjanarekstri, bæði á sviði jarðvarma og vatnsafls. Hann hefur meðal annars starfað hjá Landsvirkjun og OR. Hann starfaði einnig hjá okkur sem rekstrarstjóri orkuvera frá janúar 2011 til september 2011. Síðastliðin ár hefur hann starfað sem forstöðumaður virkjanareksturs hjá ON.

„Við fögnum Guðmundi í okkar sterka lið starfsmanna og með honum bætist við gríðarleg þekking á sviði vatnsaflsvirkjana, sem mun verða vaxandi þáttur í þróun okkar og starfsemi í framtíðinni,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku.

Guðmundur er fæddur 13. febrúar 1954 og er rafmagnsverkfræðingur og vélfræðingur að mennt. Hann er  giftur Kristjönu Arnardóttur, hjúkrunarfræðingi og eiga þau þrjú uppkomin börn og 10 barnabörn.