Ný stjórn tók við hjá SÍA, Samtök íslenskra auglýsingastofa, á 40. aðalfundi samtakanna í gær í húsakynninum Félags atvinnurekenda, þar sem samtökin eru aðildarfélag.

Elín Helga Sveinbjörnsdóttir hjá Hvíta Húsinu hætti sem formaður og við formennskunni tók Guðmundur H. Pálsson framkvæmdastjóri Pipars\TBWA. Með honum í stjórn verða Bragi Valdimar Skúlason á Brandenburg og Dóra Kristín Briem frá Íslensku auglýsingastofunni. Varamaður í stjórn er Hans Orri Kristjánsson hjá Jónsson & Le´macks.

Guðmundur Pálsson nýr formaður SÍA segir það vera mikinn heiður að taka við formennsku samtakanna og ryfjar hann upp að félagsskapurinn var stofnaður árið 1978.

„Það er merkilegt að mörg af þeim málum sem þá voru til umræðu eru enn til umræðu en önnur tökum við sem sjálfsögðum hlut. Til dæmis var það fyrsta sem félagið sameinaðist um var að mæla samræmt áhorf og lestur í fjölmiðlum til að geta birt auglýsingar á faglegan hátt. Ekki er hægt að hugsa sér auglýsingabirtingar í dag án þess að hafa mælingar á fjölmiðlum,“ segir Guðmundur.

„Önnur mál sem ekki voru til umræðu á þeim tíma en er mér og okkur hugleikið í dag er kynjahlutfall í stjórnunarstöðum á auglýsingastofunum. Við höfum lagt okkur fram um það undanfarin ár að leiðrétta þetta og ég ætla að beita mér fyrir því að við gerum slíkt hið sama í dómnefndarstörfum fyrir Lúðurinn. Það er ófært að nánast eingöngu karlmenn séu fulltrúar stofanna í dómnefndinni enda gefur það okkur augljóslega aðeins viðhorf karlkyns auglýsingafólks ef við jöfnum ekki þar.

Önnur mál sem mér finnst skipta máli í dag eru virðing fagsins og virðing fyrir starfinu sem unnið er á auglýsingastofum. Það er mjög mikilvægt fyrir samfélagið að sú þekking og reynsla sem myndast inni á stofunum haldi áfram að vaxa. Því ef þekkingin vex ekki stöðugt þá nær Ísland ekki góðum árangri í þeim heimi sem við lifum í. Heimurinn er smám saman að verða eitt markaðssvæði og þar mun sala og markaðssetning verða ein mikilvægasta þekkingin til að halda uppi lífskjörum í landinu. Ef íslensk fyrirtæki gera ekki vel á alþjóðamarkaði verða lífskjör á Íslandi aldrei góð.“