Sjávarútvegssýningin er góður vettvangur fyrir fólk innan atvinnugreinarinnar til að hittast og koma nýrri tækni á framfæri. Þetta segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brim, sem var meðal gesta á sjávarútvegssýningunni. Um 500 fyrirtæki kynna starfsemi sína á sýningunni.