Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra mun ávarpa alþjóðlega norðurslóðaráðstefnu í Arkhangelsk í Rússlandi, og mun jafnframt funda með Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, ásamt utanríkisráðherra Noregs og Danmerkur. Á þeim fundi verða samskiptin við Rússland, samvinna á norðurslóðum, öryggismál og helstu álitamál á alþjóðavettvangi til umfjöllunar.

Einnig mun Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra funda með Vladimir Pútín Rússlandsforseta á fimmtudag. Á þeim fundi verða tvíhliða samskipti ríkjanna rædd og ýmis utanríkismál verða á dagskrá, að því er segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.