Guðný Helga Herbertsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri VÍS og hefur hún störf innan fárra vikna. Hún mun leiða markaðs- og ímyndarstarf VÍS sem og stefnumótun markaðsdeildar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá VÍS. Guðný Helga hefur gegnt stöðu deildarstjóra samskiptadeildar Landspítala síðan fyrri part árs 2015. Áður var hún upplýsingafulltrúi Íslandsbanka þar sem hún leiddi einnig mótun bankans í samfélagsábyrgð. Fyrir það starfaði hún um árabil sem fréttamaður og þáttastjórnandi hjá 365 miðlum.

Guðný Helga er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á stjórnun og markaðsfræði og meistaragráðu í lögum og viðskiptum Evrópusambandsins frá Viðskiptaháskólanum í Árósum.

,,Ég hef verið afar lánsöm að fá að starfa á frábærum og fjölbreyttum vinnustöðum með kraftmiklu starfsfólki þar sem ég hef fengið að takast á við margvíslegar áskoranir. Nú tekur við ný áskorun sem ég tek fagnandi og ég hlakka mikið til að ganga til liðs við þetta öfluga félag. Leiðarljós mitt í nýju starfi verður að tryggingar snúast um fólk. Það verður gaman að kynnast bæði starfsfólki VÍS sem og viðskiptavinum félagsins á næstu misserum. Ég er ekki í nokkrum vafa um að verkefnin sem eru framundan verða bæði krefjandi og skemmtileg" er haft eftir Guðný Helgu í tilkynningunni.