Nýverið urðu breytingar á eignarhaldi Bungalo ehf. þegar Guide to Iceland keypti allt hlutafé fyrirtækisins. Starfsemi Bungalo hefur nú alfarið flust til höfuðstöðva Guide to Iceland í Borgartúni 29, en Bungalo mun þó áfram verða rekið sem sjálfstætt félag.

Viðræður milli fyrirtækjanna stóðu yfir um nokkurra mánaða skeið en samkomulag um kaupin náðist nýverið. Fyrirtækin hafa hvort um sig verið leiðandi á sínu sviði á Íslandi undanfarin ár segir í fréttatilkynningu.

Bungalo heldur úti vefsíðunni Bungalo.com sem er sérhæft markaðstorg fyrir útleigu íslenskra sumarbústaða. Guide to Iceland starfrækir markaðstorgið Guidetoiceland.is þar sem íslenskum ferðaþjónustuaðilum gefst kostur á að koma vörum sínum og þjónustu á framfæri við umheiminn.

Guðmundur og Xiaochen ánægð með samstarfið

Guðmundur Lúther Hallgrímsson framkvæmdastjóri Bungalo er ánægður með samkomulagið. „Guide to Iceland hefur mjög færa stjórnendur og starfsmenn innanborðs og ég er því sannfærður um að þessar breytingar muni stuðla að áframhaldandi vexti Bungalo," segir Guðmundur en hann mun áfram gegna þeirri stöðu undir nýju eignarhaldi.

Xiaochen Tian, framkvæmdastýra Guide to Iceland, segist ánægð með kaupsamninginn og að hún hlakki til að styrkja Bungalo enn frekar innan Guide to Iceland samsteypunnar. „Við munum geta nýtt einstakt sumarhúsaúrval Bungalo til að bjóða viðskiptavinum Guide to Iceland hagkvæma og einstaka upplifun á Íslandi“ segir hún.

„Á sama tíma hefur skapast tækifæri til að bjóða sumarhúsaeigendum enn betri kjör og aukna möguleika til útleigu. Það eru því spennandi tímar framundan hjá báðum félögum, ásamt öllum þeim sem hyggjast nýta þessa þjónustu sér til hæginda, tekjuöflunar og yndisauka."