Gylfi Ólafsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Benedikts Jóhannessonar, fjármála- og efnahagsráðherra.

„Gylfi er 33 ára heilsuhagfræðingur.  Hann lauk B.Ed. gráðu sem grunnskólakennari frá Háskólanum á Akureyri, M.Sc. í hagfræði frá Stokkhólmsháskóla og lagði stund á doktorsnám í heilsuhagfræði við Karolinska í Stokkhólmi frá 2013,“ segir í fréttatilkynningu frá Fjármála og efnahagsráðuneytinu .

Gylfi hefur áður starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi í heilsuhagfræði hér á Íslandi sem og stundakennari við Háskóla Íslands frá árinu 2014. „Árin 2012-2016 var Gylfi ráðgjafi í heilsuhagfræði hjá Quantify Research í Stokkhólmi. Hann stofnaði og rak nýsköpunarfyrirtækið Vía í skordýraeldi í Bolungarvík frá 2013-2016. Gylfi var dagskrárgerðarmaður og fréttamaður hjá RÚV 2009-2013,“ er einnig tekið fram.

Gylfi var oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi en komst ekki á þing. Hann var einnig aðstoðarmaður Benedikts þegar Benedikt komst inn á þing. Gylfi er giftur Tinnu Ólafsdóttur og eiga þau eina dóttur.