Fjármála-  og efnahagsráðherra hefur skipað hóp sem falið er að vinna stutta skýrslu um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóðanna. Hópurinn er skipaður í samráði við Landssamtök lífeyrissjóða. Þetta kemur fram í frétt á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Verkefni starfshópsins er að kortleggja árlega fjárfestingagetu lífeyrissjóðanna, setja fram æskileg markmið um erlendar eignir þeirra sem og áætlun um hversu hratt lífeyrissjóðirnir gætu náð slíkum markmiðum. Einnig er markmið starfshópsins að meta hvort að æskilegt sé að breyta núverandi löggjöf um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða, sér í lagi með tilliti til þaks eða gólfs á erlendri eign þeirra. Gert er ráð fyrir því að hópurinn ljúki störfum á tveimur vikum.

Eftirfarandi aðilar sitja í hópnum:

  • Gylfi Magnússon, dósent við HÍ, formaður
  • Hersir Sigurgeirsson, dósent við HÍ
  • Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lifeyrissjóða
  • Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs
  • Fjóla Agnarsdóttir, hagfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu