Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,5%. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Seðlabanka Íslands .

Meiri hagvöxtur en spáð hafði verið, og hækkandi verðbólguvæntingar og horfur á verðbólgu yfir markmiði næstu misseri eru sagðar helstu ástæðurnar. Raunvextir Seðlabankans séu í kjölfarið orðnir lægri en æskilegt sé.

„Hagvöxtur á síðasta ári og á fyrri hluta þessa árs var meiri en fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Þrátt fyrir vísbendingar um hægari vöxt á seinni hluta ársins er spáð 4,4% hagvexti á árinu öllu í nóvemberhefti Peningamála . Það er tæplega 1 prósentu meiri vöxtur en bankinn spáði í ágúst. Gert er ráð fyrir að hægja muni á hagvexti á næstu misserum og að spenna hverfi úr þjóðarbúskapnum.“

„Verðbólga var 2,8% í október. Munurinn milli mælikvarða á verðbólgu með og án húsnæðis hefur ekki verið álíka lítill í rúm fjögur ár. Áfram dregur úr árshækkun húsnæðisverðs en á móti vegur að innflutningsverð hefur hækkað umtalsvert að undanförnu. Að hluta endurspeglar það hækkun olíuverðs á alþjóðamarkaði en gengi krónunnar hefur einnig lækkað frá því í ágúst.“

Horfur eru á að verðbólga haldi áfram að aukast og verði nokkuð yfir markmiði á næsta ári. Þá hafa verðbólguvæntingar hækkað undanfarið og eru nú yfir markmiði á alla mælikvarða. Verðbólguhorfur hafa því versnað en á móti vega horfur á að hraðar dragi úr vexti efnahagsumsvifa en áður var talið.

Telja nauðsynlegt að hækka vextina

Aukin verðbólga og hærri verðbólguvæntingar síðustu mánuði hafa lækkað raunvexti Seðlabankans umfram það sem æskilegt er í ljósi núverandi efnahagsástands og -horfa. Því er nauðsynlegt að hækka vexti bankans nú.

Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili minni spennu í þjóðarbúskapnum, launaákvarðana og þróunar verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Þá ítrekar Peningastefnunefnd að hún hafi „bæði vilja og þau tæki sem þarf til að halda verðbólgu við markmið til lengri tíma litið,“. Haldi verðbólguvæntingar áfram að hækka og festist í sessi umfram markmið muni það kalla á harðara taumhald peningastefnunnar. Aðrar ákvarðanir, einkum á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum, hafi þá áhrif á hversu mikill fórnarkostnaður verði í lægra atvinnustigi.

Þessi yfirlýsing er svo til orðrétt sú sama og á síðasta vaxtaákvörðunarfundi.

Vextir verða því sem hér segir:

1. Daglán 6,25%
2. Lán gegn veði í verðbréfum 5,25%
3. Innlán bundin í 7 daga 4,50%
4. Viðskiptareikningar 4,25%
5. Bindiskyldar innstæður, meðaltalsuppfyllt 4,25%
6. Bindiskyldar innstæður, föst bindiskylda 0,00%