Eftir lækkanir gærdagsins hækkaði úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland um 0,15% í dag og endaði i 1.777,68 stigum. Vísitalan lækkaði í gær um 0,58% og þá hefur vísitalan lækkað um 5,46% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa í Tryggingamiðstöðinni, eða um 1,26% í viðskiptum sem hljóða upp á 40,6 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 20,10 krónum á hlut. Gengi bréfa Vátryggingafélags Íslands hækkaði einnig, eða um 1,17% í 28,4 milljóna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 7,79 krónum. Hagar hækkuðu einnig um 1,25% en þó aðeins í rúmlega 1,8 milljón króna viðskiptum.

Mest lækkaði gengi bréfa HB Granda eða um 0,78% í 17,7 milljón króna viðskiptum. Verð á hvert bréf félagsins er þá 32 krónur. Jafnframt lækkaði gengi hlutabréfa í Össur hf um 0,67% í óverulegum viðskiptum upp á 1,78 milljón króna og endaði hvert bréf á að kosta 445 krónur.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 2,9 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,4% í 100 milljón króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,5% í 2,7 milljarða viðskiptum.