Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,90% í dag og endaði í 1810,31 stigi. Þá hefur vísitalan lækkað um 3,73% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,21% í viðskiptum sem hljóða upp á 742 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 33,4 krónum á hlut. Gengi bréfa Haga hækkaði þá einnig, eða um 1,26% í rúmlega 230 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 48,4 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Regins, eða um 0,68% í viðskiptum sem hljóða upp á 65 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 21,95 krónur. Ekkert annað bréf lækkaði í gengi í viðskiptum dagsins.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 3,3 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 10,7 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,8% í dag í 3,1 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 9,7 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,7 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 9 milljarða viðskiptum.