Hafliði Helgason hefur verið ráðinn sem ritstjóri efnahags- og viðskiptafrétta hjá 365. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Hafliði er menntaður blaðamaður frá Svíþjóð og hefur einnig stundað nám við Háskóla Íslands í heimspeki. Hafliði er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Hann hefur áður unnið hjá Fréttablaðinu, en hann var í hópi fyrstu blaðamanna þar. Starfaði Hafliði hjá blaðinu til 2007 og meðal annars sem ritstjóri Markaðarins - fylgiblaðs Fréttablaðsins um viðskipti.

Hefur Hafliði einnig unnið störf tengd fjárfestingum - meðal annars hjá Framtakssjóði Íslands frá 2012 til 2015.