Vegna umfjöllunar í fréttaskýringarþættinum Kveiki þriðjudagskvöldið 2. október, hafa Samskip sent frá sér tilkynningu þar sem þeir segja að verklagi hefur verið breytt frá þeim tíma sem fjallað var um í þættinum. Um var að ræða atvik frá síðasta ári en í þættinum var fjallað um meðferð og verklag í kringum ráðningu erlends starfsfólks á Íslandi.

Viðskiptum við þá tilteknu starfsmannaleigu sem nefnd var hætt eftir síðasta ár en jafnframt hafnar fyrirtækið og stjórnendur þess að þau hafi haft vitneskju um það athæfi sem þar er lýst.

Fyrirtækið segir í yfirlýsingunni að komi í ljós brotalamir á starfsemi starfsmannaleiga sem Samskip hafa átt í viðskiptum við verða þau mál könnuð og á þeim tekið með viðeigandi hætti til samræmis við keðjuábyrgð fyrirtækisins.

Samskip segist jafnframt leggja áherslu á að ekki sé gert upp á milli starfsmanna eftir kyni eða þjóðerni og að starfsmaður sem ráðinn er með aðstoð starfsmannaleigu njóti sömu kjara og þeir sem kynnu að vera ráðnir eftir öðrum leiðum.

Segja brot á réttindum jafngilda broti á samningum

Brjóti starfsmannaleiga á réttindum starfsmanna eða önnur lög og reglur þá jafngildir það broti á samningum við Samskip og er þeim þá rift.

Samskip segjast jafnframt ekki hafa tök á að sannreyna fullyrðingar sem fram komu um að starfsmannaleiga sem fyrirtækið átti í viðskiptum við 2017 hafi nýtt sér starfskrafta fólks sem ekki hafði atvinnuleyfi hér á landi.

Samskip og stjórnendur fyrirtækisins hafna því alfarið að hafa haft vitneskju um slíkt athæfi. Eftir árið 2017 hættu Samskip viðskiptum við starfsmannaleiguna sem um var fjallað í þættinum. Samskip hafa nýtt sér þjónustu starfsmannaleiga vegna tímabundinna verkefna á álagstímum í starfseminni.

Samskip leggja sig fram um að vera góður og eftirsóknarverður vinnustaður fullyrðir fyrirtækið og vísar fyrirtækið í að það segi sína sögu að fjölmörg dæmi séu um að starfsfólk sem fyrst hefur komið til starfa í gegn um starfsmannaleigu hafi síðar fengið fulla ráðningu hjá fyrirtækinu.